Nokia 1208 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara

þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að

halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns

vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar.

Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því

að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum

né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar

þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á köldum eða heitum stað. Hátt

hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,

skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki

Meðferð tækisins 11

background image

myndast innan í því og hann getur skemmt

rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er

í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista

það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld

og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða

sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið. Aðeins skal nota

mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð

tækisins.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega

hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða

samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á

þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að

brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d.

tengiliðum og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig

hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og

fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,

hleðslutækið eða annan aukabúnað.