Nokia 1208 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er

ætlað til notkunar með BL-5CA rafhlöðu. Hugsanlega verða

hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki.

Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3. Númer hleðslutækisins

getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð

klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR,

U, A, C, K eða UB.

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð

sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og

biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um

rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af

Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með

hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með

þessu tæki.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan

hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera

nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og

tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg

10 Almennar upplýsingar

background image

tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist

á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja

hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki

má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar

sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða

tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan

sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).

Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu.

Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa

tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á

rafhlöður.

Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni

þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni

veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni.

(Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis

getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku.

Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á

rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta

sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög

og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt

er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata

eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu forðast að

hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist það skal hreinsa

svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða

leita læknisaðstoðar.

Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti

í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn

eða aðra vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður geta sprungið ef

þær skemmast.

Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er

ætluð. Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða

sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða

rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að

rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til

þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota

hana. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.