
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í
vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki
12 Viðbótaröryggisupplýsingar

nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,
rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða
hraðastýringu og loftpúðakerfi. Frekari upplýsingar er að
finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega úr skugga
um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt
uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima
vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið,
hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa skal í huga að
loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða
fylgihlutum fyrir á loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél.
Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað
hættu við stjórn flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.